Ástarsamband
Áður ég var ein og villt
Og allir að mér gerðu gys
nú er líf mitt af ró fyllt
Yndið mitt hann púki.is
þakklát
Ég, þú hann og hún. það sem kemur mér við!
Áður ég var ein og villt
Og allir að mér gerðu gys
nú er líf mitt af ró fyllt
Yndið mitt hann púki.is
þakklát
comments$>:
Ég fatta ekki neitt, nema ef þú ert að tala um stafsetningavillur og ybselon og svoleiðis?
jú jú þú fattar! þú ert svo fattinn mamma mín. kraaaaaam
hehehe... já gott samband... kannski hann kann að meta alvöru deit..
hef nú ekki hitt hann enþá, en hann svara mér alltaf með berum sanleikanum, ekkert að hlífa mér;)
Þetta er frábært hjá þér - ég fattaði það alveg strax, reyndar var ég eiginlega hissa þegar ég las ljóðið og sá að það var y í gys.... ekki illa meint : )
Frábær þessi púki : )
Þú ert nú bísna gott skáld...
meinar þú að það sé ekki y í gys, er púki að blekkja mig? er hann ljúari? ER HANN EINSOG ALLIR AÐRIR ? gráááát, sniff sniff BEEEEEE:´(
Eru ekki til tvær meiningar með orðinu gis og gys, ef svo er hvernig gerir púki mismun á því? Það eru líka til fleiri orð sem hafa tvær merkingar.....
Púki var ekkert að blekkja, það er y í gys. Ég held að Stefanía hafi verið að meina að hún væri hissa á því að þú skrifaðir það rétt :) En Stefanía... er ekki ufsilón í býsna? ;)
er ekki ufsilón í yfsilón ;)
Nei... það er u
(sbr. pylsuauglýsingarnar hér um árið)
Jú það er ufislon í bísna.... : )
Þið eruð allar Ypsilon með u-i
Jæja, núna skora ég á þig að koma með blogg, úr því ég er búin að skrifa langt blogg....
Sko... fyrr má nú vera ástarsambandið! Það hefur ekkert heyrst frá þér í þrjá mánuði!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim