miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Sár tár


Mamma afhverju vill enginn leika við mig
Ég er alltaf að reyna vera góður
En allir eru vondir við mig
Ég öskra og fer að gráta

Elskan mín, hvað gerðist
Hver var vondur við þig
Honum líður bara ílla sjálfum
Þú ert besti strákurinn í öllum heiminum

Mamma afhverju vill enginn leika við mig
Ég má aldrei vera með í leikjum
Segja bara að ég sé fyrir
Ég öskra og fer að gráta

Elskan mín, hvað gerðist
Hver sagði svona við þig
Fyndu bara annan að leika við
Þú ert besti strákurinn í öllum heiminum

Mamma afhverju vill enginn leika við mig
Ég á fullt af flottu dóti
En enginn vill koma að sjá
Ég öskra og fer að gráta

Elskan mín, hvað gerðist
ef þú villt eignast vini
vertu þá vinur og vinirnir koma
Þú ert besti strákurinn í öllum heiminum




comments$>:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim